Skilmálar
Skór.is netverslun er með fjölbreytt úrval af skóm og fatnaði fyrir dömur, herra og börn. Það er einfalt og þægilegt að versla hjá okkur og bjóðum við upp á fría heimsendingu á öllum pöntunum innanlands. Pantanir eru sendar samdægurs/þarnæsta virka dag með Heimakstri sem keyrir út sendingar milli klukkan 17:00 og 22:00 virka daga á höfuðborgarsvæðinu. Íslandspóstur sendir heim utan höfðuborgarsvæðisins og einnig er hægt að sækja á pósthús, í póstbox eða sækja pantanir til okkar á einn af eftirtöldum stöðum:
Guðríðarstíg 6-8, 113 Reykjavík.
Skechers Kringlunni
Skechers Smáralind
Ellingsen Fiskislóð
Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntunin er afgreidd um leið og greiðsla hefur borist. Í kjölfarið færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og Skór.is netverslun. Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða full endurgreiðsla.
Upplýsingar um seljanda
Verð
Greiðslumöguleikar
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Skila- og endurgreiðsluréttur
Skilafrestur S4S er 14 dagar og er upphæðin ávallt endurgreidd að fullu inn á þann greiðslumiðil sem notaður var við kaupin.
Sé greitt með gjafakorti S4S verður upphæðin lögð aftur inn á það kort.
Gætið þessað glata ekki kortinu sé möguleiki á að vörunni verði skilað.
Varðandi skil á vörum sem keyptar voru í netverslun, skal senda póst á skor@skor.is með pöntunarnúmeri, nafni og símanúmeri. Einnig er hægt að koma í eina af verslun félagsins sem hægt er að sjá
Varan skal vera ónotuð, utan þess sem nauðsynlegt er til að staðfesta eiginleika og virkni hennar, þ.e. að hún passi viðkomandi.
Æskilegt er að vörunni sé skilað, í upprunalegum umbúðum og greiðslukvittun fylgi með.
14 daga skilafresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda, skv. g.lið 1. mgr. 5. gr. Laga nr. 16/2016
Höfundaréttur og vörumerki
Trúnaður
Varnarþing
Hafa samband
Galli
Galli
Ef kaupandi kaupir gallaða vöru í netverslun S4S þá er hvert mál skoðað fyrir sig. Ef ágreiningur rís upp vegna galla er þriðji aðili látin meta hvort um galla sé að ræða. Ef um galla er að ræða er boðið upp á viðgerð, ný vara, afsláttur eða endurgreiðsla. Tímamörk kaupanda til að leggja fram kvörtun um galla á seldri vöru er 2 ár frá því að hann veitir söluhlut viðtöku eða, jafnvel 5 ár til að bera fyrir sig galla frá því að hlutnum var veitt viðtaka ef söluhlut er ætlaður verulega lengri endingartími.
Um rétt neytanda vegna galla vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Kærunefn vöru og þjónustukaupa, Borgartúni 21, 105 Reykjavík má nálgast hér.